Fyrsta rall ársins

EvoXKeppnistímabilið 2010 í rallakstri hefst á morgun þegar eknar verða leiðar í kringum Þingvelli og eru 14 áhafnir skráðar til leiks að þessu sinni og verða eknir rétt um 110 km á sérleiðum á morgun. Nokkrir nýir bílar eru í þessari keppni og er þá helst að nefna EvoX (10) sem Aðalsteinn og Heimir mæta á, Impreza STI sem Jón Bjarni og Borgar mæta á, Evo8 sem Marian og Jón aka en einnig mæta tveir nýir bílar í nýjan flokk (4x4 non-turbo) en það eru Ásta og Eva og ég og Raggi bróðir en báðir bílarnir eru Subaru Impreza. Fleiri bílar eru væntanlegir í þennan flokk í næstu keppni.

Fyrirfram er búist við að Jón Bjarni / Borgar, Hilmar / Sigurður og Pétur / Halldór muni slást um fyrsta sætið en ekki er hægt að horfa framhjá ökumönnum eins þeim bræðrum Fylki og Elvari og svo er alltaf spurning hvað Jóhannes og Björgvin gera. Ég á ekki von á að Aðalsteinn og Heimir verði í þessum slag í þessari keppni þar sem þeir eru að læra á nýjan bíl og slíkt tekur tíma. Í jeppa flokki eru það Sighvatur og Andrés sem verða að slást við Baldur og Elías en einungis tveir jeppar eru skráðir að þessu sinni. Fróðlegt verður að sjá hvar þeir enda svo í heildarslagnum. Einungis einn eindrifsbíll mætir í þessa keppni en það eru feðgarnir Hlöðver og Baldur og er erfitt að átta sig á hvar þeir verða berjast og við hverja. Frekari fréttir af keppninni verða eftir helgina.

Subaru Impreza

Bíll okkar bræðra á leið í hjólastillingu hjá Jonna snilling.

Rallið hefst í fyrramálið kl. 8:00 en samsöfnun er við ÍSÍ í Laugardal eftir keppnina en tímamaster og rásröð keppninar er að finna inná www.bikr.is

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

til hamingju með flottan bíl og flottan akstur.... þú hefur engu gleymt..:-)

petur (IP-tala skráð) 25.5.2010 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband